Marakóskur kjúklingaréttur
- astrideyberg02
- Apr 4, 2016
- 1 min read
* 3 kjúklingabringur, skornar í tvennt
* 1 söltuð sítróna
* 1 rauðlaukur, smátt saxaður
* 1 -2 msk. flatblaðasteinselja smátt söxuð
* 1-2 msk. ferskur kóríander smátt saxaður
* 2-3 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
* 1 tsk. svartur pipar
* 2 tsk. túrmerik
* 1 tsk. engiferduft
* saffran nokkrir þræðið
* 2 msk. olífuólía
* 4 msk. vatn
* 15 – 20 olífur
Byrjið á að skera sítrónu í fjóra parta og taka sítrónukjötið úr berkinum, hreinsið steina frá og skerið kjörið mjög smátt. Geymið börkinn þar til síðar. Setjið smátt skorið sítrónukjötið, steinselju, kóríander, rauðlauk og hvítlauk á pönnu/tagine ásamt olífuolíunni. Blandið vel saman og veltið kjúklingabitunum vel upp úr kryddblöndunni, þannig að blandan þekji kjúklinginn vel. Steikið við meðalhita í u.þ.b. 10-15 mínútur og snúið kjúklingabitunum öðru hverju, þannig að þeir steikist jafnt.
Bætið vatni á pönnuna/taginuna og setjið þétt lok á hana. Látið vera yfir meðalhita í u.þ.b. 20 – 30 mínútur til viðbótar eða þar til kjúklingurinn er gegnsteiktur.
Skerið í sítrónubörkinn þannig að hann lýkist laufi og setjið yfir kjúklinginn ásamt ólífum. Berið fram með kúskús, t.d. þessu eða góðu brauði.

Comments