Pastaréttur með grænmeti og beikoni
- astrideyberg02
- May 13, 2016
- 1 min read
Innihald:
* 2 pakkar Pastella Fettucine – ferskt pasta
* 250 gr sveppir í sneiðum
* 250 gr brokkolí, smátt skorið
* 250 gr blómkál, smátt skorið
* 200 gr beikon í teningum
* 2,5 dl rjómi
* 1 dl vatn
* 1 msk olía
* Salt og pipar
Stóran pott(fyrir pastað)
Stóra pönnu(fyrir grænmetið)
Gott að hafa gott brauð með.
* Skera grænmetið og beikonið.
* Steikið beikonið í olíunni á pönnu.
* Þegar þeir hafa brúnast er grænmetið sett út á í ca.5 mín.
* Bætið rjóma og vatni á pönnuna og kryddið með salti og pipar.
* Látið sósuna malla í 5 mínútur og smakkið til.
* Á meðan sósan mallar, eldið pastað eftir leiðbeiningum á pakkanum.
* Geymið örlítið af vatninu sem pastað er soðið í þegar þið takið pastað upp úr.
* Blandið pasta, sósu og beikoni vel saman, bætið gjarnan smá af pastavatninu út í réttinn ef ykkur finnst sósan of

þykk.
* Berið strax fram.
* Setja krydd ofan.
Comments