top of page

Kladdkaka með mjúkum marengs

  • Writer: astrideyberg02
    astrideyberg02
  • May 18, 2016
  • 1 min read

Innihald:

* Súkkulaðikaka:

* 150 g smjör.

* 300 g suðusúkkulaði.

* 1.5 dl sykur.

* 3 egg.

* 2 dl hveiti.

* 2 msk kakó.

Marengs:

* 4 eggjahvítur.

* 1.5 dl sykur.

* 1 tsk ljóst edik.

* 2 msk sterkja (t.d. majsenamjöl.)

* ca. 1 dl súkkulaðihnetusmjör.

Aðferð:

* Bakarofn stilltur á 175 gráður við undir- og yfirhita.

* Smelluform (24 cm) er klætt bökunarpappír.

* Smjör og súkkulaði er brætt saman yfir vatnsbaði.

* Egg og sykur þeytt saman og síðan er hveiti og kakói bætt út í.

* Þá er súkkulaði-smjörblöndunni bætt út í smátt og smátt þar til allt hefur blandast saman.

* Deigið er sett í formið og bakað í ofni við 175 gráður í ca. 20 mínútur.

* Þá er kakan tekin út og ofninn hækkaður í 200 gráður.

* Eggjahvíturnar eru stífþeyttar og sykrinum bætt út í smátt og smátt á meðan.

* Því næst er ediki og sterkju bætt út í.

* Súkkulaðihnetusmjörið er hitað í örbylgju ofni í ca. 20 sekúndur eða þar til það verður dálítið fljótandi en þó alls ekki of heitt.

* Þá er því bætt varlega út í marengsinn með sleikju en fallegt er að blanda því bara létt saman við marengsinn svo að hann verði fallega marmaramunstraður.

+ Marengsinn er settur yfir kökuna og bakað í ca. 20-25 mín til viðbótar.

* Gott er að fylgjast vel með kökunni þvi marengsinn getur orðið dökkur og því þarf mögulega að setja álpappír yfir hana þegar um helmingur af bökunartímanum er liðinn.

* Gott er að bera kökuna fram með þeyttum rjóma.


 
 
 

Kommentare


Featured Posts
Check back soon
Once posts are published, you’ll see them here.
Recent Posts
Archive
Search By Tags
Follow Us
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
  • w-facebook
  • w-googleplus
  • Twitter Clean
bottom of page