Brownie smákökur
- astrideyberg02
- May 18, 2016
- 1 min read
Himneskar Brownie smákökur (um 14 frekar stórar kökur)
Innihald:
* 250 gr súkkulaði (dökkt eða suðusúkkulaði) + 100 gr saxað súkkulaði (má líka sleppa.)
* 60 gr íslenskt smjör.
* 2 egg.
* 100 gr púðursykur.
* 1 tsk vanilludropar.
* 50 gr hveiti.
* 1/2 tsk lyftiduft (ég nota alltaf vínsteins.)
* 1/4 tsk salt.
Aðferð:
Byrjið á að bræða saman smjör og 250 gr súkkulaði við vægan hita.
Setjið egg, sykur og vanillu í skál og pískið aðeins saman.
Hellið súkkulaðiblöndunni saman við og blandið vel saman.
Hrærið þurrefnunum að síðustu saman við ásamt söxuðu súkkulaði ef þið notið það.
Setjið skálina inn í ísskáp í 20-30 mínútur þannig að deigið stífni aðeins.
Hitið ofninn í 180 gráður á meðan.
Setjið um 1 msk af deiginu á bökunarpappírsklædda plötu og bakið í um 9-10 mínútur eða þar til kökurnar eru bakaðar í köntunum og enn blautar í miðjunni.
Látið kökurnar kólna alveg á plötunni og takið þær svo af.
Geymast vel í loftþéttu boxi í ísskáp, má líka frysta.

コメント