Hafrakossar
- astrideyberg02
- May 18, 2016
- 1 min read
* 250 gr mjúkt smjör við stofuhita
* 2 dl púðursykur
* 1 dl sykur
* 1 egg
* 2 tsk vanilluexract
* 3 dl hveiti
* 1 tsk matarsódi
* ½ tsk salt
* ½ tsk kanill
* 6 dl haframjöl (ath ekki grófir hafrar)
Aðferð:
Hitið ofn í 170 gráður með blæstri.
Hrærið saman smjör og sykur þar til létt og ljós.
Bætið egginu og vanillu út í og blandið vel saman við.
Hrærið saman hveiti, matarsóda, salti og kanil.
Bætið út í smjörblönduna og hrærið létt saman.
Bætið höfrunum út í og blandið þar til rétt svo komið saman.
Setjið deigið með tveimur teskeiðum á plötu, þrýstið aðeins ofan á hverja köku og bakið í 8-10 mínútur.
Kælið á grind.
Krem:
* 150 gr smjör
* 250 gr flórsykur
* 2 msk rjómi
* 1 tsk vanilluextract
Aðferð: Þeytið allt vel saman og sprautið eða smyrjið á kældar kökurnar og leggið aðra köku ofan á.

Comments