top of page

Pizza brauð.

  • Writer: astrideyberg02
    astrideyberg02
  • May 18, 2016
  • 1 min read

Innhald:

2 bréf þurrger (11.8 g bréfið).

1 tsk hunang eða sykur.

3 dl volgt vatn.

1 tsk salt.

2 msk olía.

8-10 dl hveiti.

Fylling:

2-3 dl góð pizzasósa.

200 g pepperóni.

ca. 300 g rifinn ostur.

2 mozzarellakúlur (120 g stykkið).

heitt pizzakrydd frá Pottagöldrum eða annað gott krydd.

Aðferð:

Gerið er leyst upp í volga vatninu ásamt hunangi eða sykri þar til blandan byrjar að freyða, tekur ca. 10 mínútur.

Hveiti og salti blandað saman við olíuna.

Um það bil helmingnum af þessari blöndu er bætt út í gerblönduna og unnið með hnoðkrók í vél eða í höndum.

Smátt og smátt er hveitiblöndunni bætt saman við og hnoðað þar til deigið hefur fengið passlega áferð, hvorki of blautt eða of þurrt.

Þá er blautur klútur lagður yfir skálina og deigið látið hefast í 30 mínútur á hlýjum stað.

Því næst er deiginu skipt í tvennt og hvor helmingur fyrir sig flattur út í rétthyrning, ca. 25 x 40 cm.

Pizzasósunni er dreift á báða helmingana ásamt pepperóni, rifnum osti og niðurskornum mozzarella.

Kryddað með góðu kryddi, t.d. heitu pizzakryddi, oregano og/eða basiliku.

Þá er pizzunum rúllað upp frá langhliðinni og þær lagðar á ofnplötu klædda bökunarpappír. Rúllurnar eru penslaðar með vatni eða olíu og kryddaðar með saltflögum, pizzakryddi eða oregano. Rúllurnar látnar hefast í 30 mínútur.

Ofn hitaður í 200 gráður og rúllurnar bakaðar í 30-35 mínútur.


 
 
 

Comentarios


Featured Posts
Check back soon
Once posts are published, you’ll see them here.
Recent Posts
Archive
Search By Tags
Follow Us
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
  • w-facebook
  • w-googleplus
  • Twitter Clean
bottom of page